06febrúar
Hæhæ öllsömul ! :)
Jámm kannski voða langt síðan ég bloggaði seinast .. :) En mikið er nú búið að gerast ! Árshátíðin er núna á fimmtudaginn og allir búnir að stússast voða mikið í kring um það að kaupa sér kjóla og hvaðeina, það verður s.s. galaball og ég vona að sem flestir mæta nú !!
Eeen um helgina komu Linda, Sigrún og Herdís til mín og við héldum pínulítið sleepover, voða gaman. Það var alveg sett upp bíótjaldið og allt saman. Við Herdís voru svaka öflugar í þeim málum að tengja allt voða mikið ! :) En já það heppnaðist bara svona svaka vel var ekki farið að sofa fyrr en um 6 leytið held ég og allar vorum við dauðþreyttar að pína okkur í að læra undir próf á daginn eftir sem gekk misvel held ég..
En já talandi um próf! Váá maður gerir varla annað þess dagana en að læra undir próf... eendalaust af prófum, eins og t.d. í dag þá áttum við að vera í þremur prófum en eitt féll niður útaf því að kennarinn var veikur en hin tvö voru samræmd próf... voða gaman af því! :) Ég er farin að halda að þessir kennarar halda að við eelskum próf ! :) Nei nei það er ágætt að fá smá þjálfun fyrir samræmdu prófin í vor.
En ég held að þetta sé komið gott í bili ... Heyrumst einhvertímann ! :) :*
-Magga! ;)
11janúar
Hæhæ öll sömul,,
Rosa gaman að byrja í skólanum aftur pakksaddur og feitur eftir jólin og áramótin, maður algjörlega púlaður út í hverjum einasta íþróttatíma sem líður til að grenna mann svolítið eftir þessa daga. En nú er komið nýtt ár og ætlar maður að vera geðveikt duglegur á því ári í skólanum og svona en þetta segir maður víst alltaf og er ekki nógu oft að standa sig í því..
Svo er nú ekki langt í bílprófið hjá honum Ása mínum, alveg heilar tvær vikur sem þýðir að ég og allir erum bráðum bara að fá æfingarakstur... ;) Stuuð!
Fullt fullt af böllum framundan eitt t.d. á Flúðum 15.jan og svo árshátíðin sem er eitthvað gala þema 8. eða 15.feb og svo í lok feb. þá er ML ball!! ;)
Jáá eins og þið heyrið mjög mikið fram undan hjá henni Möggu ! :)
En allavega þá er ég búin að vera lítið sem ekkert heima hjá mér síðustu dagana. Ákvað að skella mér í heismókn til hennar Lindu minnar fyrir körfuboltaæfingu á þrd. og Herdís líka bökuðum pizzu og læti og svo fórum við bara á körfuboltaæfingu. Gisti svo heima hjá Lindu og fórum ekki að sofa fyrr en klukkan hálf fjögur.. Svona er að hittast svona sjaldan að maður þarf alveg endalaust að tala! :)
Eftir skóla daginn eftir fór ég svo bara til Herdísar og vorum ótrúlega duglegar að læra.. Fórum svo um kvöldið á hjálpasveita"fund" vorum í einhverjum fánahermannaleik crap! :) Rosa skemmtilegur eeeen ég nenni ekki meiru, finnst þetta helvíti öflugt blogg svona það fyrsta sem ég geri í langan tíma !! :)
Sjáumst
-Magga ;)
02janúar
Nýr Bloggbúi!
fólk farið að kvarta undan því að það geti ekki fylgst með mér ennþá útaf bloggsíðuleysi!! :) En allavega ég skal lofa að vera dugleg að blogga og svona ef þið verðið súper dugleg að skrifa í gestabók og skoðanir ! ;)
-Magga!