Sumarið bráðum að verða búið ?
Hæhæ :)
Ég ákvað að blogga smá vegna mikils bloggleysis! En þannig er mál með vexti að um síðustu helgi skruppum við Ási, Herdís og Sævar með tjaldvagn aftan í bílnum til Skaftafellss, það tók ekki nema rúma 3 klst að keyra. Þegar þangað var komið var það vandamálið að Sævar sagðist kunna að tjalda þessum tjaldvagni en hann kunni það síðan ekkert fyrir rest, eina sem hann kunni var fortjaldið (Y) Greit!! Þannig að ég og Herdís hörkuðum af okkur og löbbuðum að næsta tjaldvagni eins og hálfvitar og báðum um smá hjálp, haha það var bara fyndið, Herdís var eins og kúkur í framan henni fannst þetta svo fáránlegt að við værum að spurja! En jæja svo gekk þetta nú bara allt saman vel að lokum. Það var mikið hangsað mætti ég segja en á laugardeginum skruppum við til að skoða Jökulsárlón, og fórum svo niður á strönd að leita af flöskuskeyti! Hehe við Herdís vorum öflugar í því.. En því miður fundum við ekki neitt!
En annars var þetta bara svona helvíti skemmtileg útilega nema Ási hefði mátt sleppa því að vera fótbrotinn því þá hefðum við getað labbað um og skoðað :) En það bjargaðist alveg!
En takk elskurnar fyrir skemmtilega útilegu ;**
Heyriði ég hef annars voða lítið að segja, ég er náttúrulega bara endalaust í vinnunni! Svo bara bráðum byrjar skólinn eða eftir einhverjar 3 vikur eða eitthvað,, sem þýðir væntanlega að ég er að fara að flytja í bæinn eftir tæpan mánuð! :)
En ég hef annars voða lítið að segja í bili, koma kannski myndir úr útilegu bráðlega, þegar ég kemst heim! :)
-Magga;*
Magga!

Love youuu!