Lokaferð til DK! ;)
Hæhæ ;*
Jájá það vill nú svo skemmtilega til að ég ætla að skella einu litlu bloggi hérna þar sem ég eyddi nýlega tæpri viku út í danmörku með bekknum mínum. En já það er svo skemmtilegt að segja frá því að eftir stærðfræði samræmda prófið bara um nóttina þá skelltum við okkur til Dk. Frá flugvellinum fórum við til Odense að hitta dönsku krakkana sem komu til okkar í haust.
Ég og Sigrún í flugvélinni á leiðinni út!
Við gerðum margt skemmtilegt meðan við vorum í Odense. Annan daginn fórum við í eitthvað H.C. Andersen safn, dómkirkjuna og dýragarð. Í dýragarðinum voru bara skemmtilegustu og heimskustu apar í heimi sem stukku og klesstu á gler, algjörar dúllur. Svo fengum við að eyða restinni af tímanum sem við áttum eftir í að versla á einhverri verslunargötu þarna í miðbænum. Um kvöldið hittumst við svo öll í skólanum og borðuðum þar fullt af mat sem foreldrarnir komu með og allir krakkarnir og fjölskyldurnar borðuðu saman þetta kvöld.
Ég að klappa Póný í dýragarðinum!
Á laugardeginum áttum við svo að eyða öllum deginum með fjölskyldunni sem við vorum hjá. Jájá allir gerðu eitthvað voða skemmtilegt en það vildi svo skemmtilega til að stelpan sem ég var hjá var svo þunn eftir kvöldið áður að hún nennti ekki að gera neitt allan daginn svo hún lá bara upp í rúmi að horfa á sjónvarpið og sofa til skiptis og var ekkert að spá í því hvort að mér leiddist neitt! jájá svona voru þessi danir nú skemmtilegir.
Á sunnudaginn fengum við íslendingarnir svo að hittast aftur sem betur fer! Þá fórum við á stað sem heitir Egeskov eða e-ð og þar var kastali, völundarhús, gamla bílasýningar og margt fleira.
Á sunnudagskvöldið var svo síðasta kvöldið með fjölskyldunum. Ég tók því bara rólega með minni fjölskyldu, tókum mynd á leigu og borðuðum pönnukökur með ís og sultu mmm...
Loksins á mánudaginn snemma um morguninn lögðum við í hann frá Odense og keyrðum til Kaupmannahafnar. Þar fórum við m.a. í siglingu, skoðuðum sumarhús kóngsins (sem er btw kastali!), fórum á strikið og svo í tivolí. Þetta var án efa lang skemmtilegasti dagurinn í ferðinni.
Sigrún, Herdís og ég í siglingunni ;*
Á þriðjudaginn fórum við í smá skoðunarferð um Kaupmannahöfn og stoppuðum svo til að skoða litlu hafmeyjuna og til þess að taka myndir af hópnum öllum saman. :)
yfirgáfum við Danmörk og fórum heim á leið. Þetta var algjörlega geggjuð ferð og ég vil þakka öllum fyrir samveruna :)
En ég held að þetta sé komið nóg í bili! Ég set myndir inn fljótlega ! :)
-Magga;*
Magga!

Takk fyrir skemmtilega ferð... ;) svo er það bara að setja myndir inn :)