Páskar, samræmdu, Danmörk :D


Gleðilega Páska! Brosandi


Sælt verið fólkið á þessum yndislega ógeðslega ringningadegi :)

Jæja núna er blessaða páksafríið búið og alvaran komin í fullan gang. Þar sem ég fór til Kanarý 27. mars þá er ég svona tæknilega séð búin að vera í páskafríi í tvær og hálfa vikur.
En það var svaka fjör hjá okkur Ása úti og var sko alls ekki verið að hangsa þarna þessa vikuna. Komum út á þriðjudagskvöldi á miðvikudeginum var skreppt niður á strönd og beinustu leið út í sjó. Jájá mjög gaman fyrir vatnshrædda manneskju eins og mig, ég var annars að þora í fyrsta skipti að fara út í sjó! Voða stolt. En á fimmtudeginum var alls ekki verið að sofa út þar sem við þurftum að vakna eitthvað um hálf sex minnir mig sem er um hálf fimm á íslenskum tíma og þá var komið sér í rútu í einhverja klukkutíma.
Jæja svo var það skemmtilegasti parturinn! Bátsferðin!!! En jájá allir í góðum gír og hressir og svona síðan lögðum við af stað ooog það var ekkert svo gaman... Ég, Ási, Helga, Jóhannes og Einar urðum öll sjóveik en ég og Ási vorum nú heppin að hafaekki ælt því það gerðu hin! Alveg var það ógeðslegt. En nú jæja svo var það bara lengri rútuferð upp á eitthvað helvítis fjall og fórum þar í aðeins 2300 metra hæð á rútu!! Síðan seinna um daginn komumst við loksins í dýragarðinn og vorum það í einhvern tíma. Þar sáum við höfrungashow og háhyrninga show og svona gaman eeen ekki alveg þess virði að leggja alla þessa ferð á sig fyrir að fara í einn dýragarð því manni leið ekkert vel eftir þessa ferð! :/
Á föstudeginum var farið í rennibrautagarð, go-kart, tivoli og keilu og svo voru hinir dagarnir bara svona eitthvað að búðarápast og svona. Þetta var rooosa skemmtileg ferð... Jájá en komið nóg um þaaað. :)

En núna eins og ég sagði öruggelga áðan þá eru páskarnir búnir og einhver tvær og hálf vika held ég í samræmdu prófin. Maður er alveg að farast úr stressi þessa dagana. En svo eftir þessi helvítis próf verður bara dans á rósum hjá okkur. Þá loksins förum við til DK oog þegar við komum heim þá er bara river rafting, þórsmörk og eitthvað svona skemmtilegt eftir.

En ég held að þetta sé komið í bili, á örugglega ekki eftir að blogga eitthvað að ráði fyrr en eftir samræmdu kannski eitthvað stutt og laggott. En þá barasta heyri ég í ykkur elskurnar! :*

-Magga! ;)
12. apríl 2007 klukkan 16:14
Magga!

Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: Magga!
  • Staður: Grímsnes
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Grímsá
  • Hjúskaparstaða: Pikkföst
  • Um mig: Ég er lítil stúlkukind úr sveitinni sem er ótrúlega skemmtileg!!!

Auglýsing

Könnun

Hvert stefnir þú næsta vetur?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur