Veiveivei!
Jæja nú er búið að vera frí í skólanum í 5 daga! Búið að vera vetrarfrí, foreldraviðtöl og læti. En já gaman að segja frá því að allir eru búnir að fá einkunnirnar sínar og vondandi allir voða glaðir yfir þeim! Allavega mega sumir vera það ! ;)En 8.febrúar var Árshátíðin hjá okkur og var galaþema þetta árið. Það voru allir voða fínir og sætir. Veðurguðirnir voru að spila , geðveikt fjör! En það vildi svo skemmtilega til að við stelpurnar enduðum fyrir algjöri tilviljun allar í rauðum kjólum og vakti það mikla athygli að við værum svona rauðar!! :) þrátt fyrir það þá vorum við glæsilegar eins og þið sjáið! :D
Skemmtiatriðin báru af þetta árið fannst okkur.. Öll atriðin voru mjög fyndin, skemmtileg og flott!!
En það var dansað og haft gaman allt kvöldið enda þurftum við að taka þessu balli með stæl þar sem þetta var seinasta grunnskólaballið okkar ! ;) Svo er það bara ML ball næst 9 eða 10 mars og vona ég að það mæta sem flestir ! ;)
Annars er nú ekki mikið búið að ske uppá síðkastið hjá mér ! Ási minn er nú samt kominn með bílprófið, reyndar svolítið síðan ca mánuður !
En ég segi þetta bara gott í bili!
-Magga !
21. febrúar 2007 klukkan 12:06
Magga!
Magga!
