Ég ákvað að blogga smá vegna mikils bloggleysis! En þannig er mál með vexti að um síðustu helgi skruppum við Ási, Herdís og Sævar með tjaldvagn aftan í bílnum til Skaftafellss, það tók ekki nema rúma 3 klst að keyra. Þegar þangað var komið var það vandamálið að Sævar sagðist kunna að tjalda þessum tjaldvagni en hann kunni það síðan ekkert fyrir rest, eina sem hann kunni var fortjaldið (Y) Greit!! Þannig að ég og Herdís hörkuðum af okkur og löbbuðum að næsta tjaldvagni eins og hálfvitar og báðum um smá hjálp, haha það var bara fyndið, Herdís var eins og kúkur í framan henni fannst þetta svo fáránlegt að við værum að spurja! En jæja svo gekk þetta nú bara allt saman vel að lokum. Það var mikið hangsað mætti ég segja en á laugardeginum skruppum við til að skoða Jökulsárlón, og fórum svo niður á strönd að leita af flöskuskeyti! Hehe við Herdís vorum öflugar í því.. En því miður fundum við ekki neitt! En annars var þetta bara svona helvíti skemmtileg útilega nema Ási hefði mátt sleppa því að vera fótbrotinn því þá hefðum við getað labbað um og skoðað :) En það bjargaðist alveg! En takk elskurnar fyrir skemmtilega útilegu ;**
Heyriði ég hef annars voða lítið að segja, ég er náttúrulega bara endalaust í vinnunni! Svo bara bráðum byrjar skólinn eða eftir einhverjar 3 vikur eða eitthvað,, sem þýðir væntanlega að ég er að fara að flytja í bæinn eftir tæpan mánuð! :) En ég hef annars voða lítið að segja í bili, koma kannski myndir úr útilegu bráðlega, þegar ég kemst heim! :)
Jæja gott fólk, allt gott að frétta úr borgarfirðinum! Endalaust mikið að gera í þessari blessuðu vinnu minni,enda vakna ég líka stundum kl. 05.30 og fer ekki í rúmið fyrr en klukkan 02:00 en það er reyndar ekki á hverjum degi sem betur fer.. Um helgina fór ég á frændsystkinamót á Blönduósi með Ása sem var bara helvíti gaman og fínt að fá smá frí frá vinnunni. Annars er voða lítið að frétta af mér annað en að ég er endalaust í vinnunni og verð það meira og minna í allt sumar, þannig að elsku Herdís, Sigrún og Linda mín! Getum við ekki farið að plana einhverja skemmtilega stelpuhelgi í sumar sem ég get fengið frí og við gætum farið í bæinn og verslað saman og eitthvað skemmtilegt! ;) Mér finnst að við ættum að redda því elskur ! ;*
Um síðustu helgi hittumst við vinirnir allir saman í miðengi og ákváðum að fara í smá útilegu öll saman svo við tjölduðum ofan í einhverjum gíg í miðengi !! (Y) haha bara fyndið,, en það var bara svona helvíti gaman og eg vona að við getum gert þetta aftur einhvertíman seinna í sumar..
En núna loksins er ég að byrja í aðal vinnunni minni í sumar s.s. í Grímsá,, fer upp í borgarfjörð á morgun og verð heillengi eða í 6 daga fer svo heim í 2 og fer svo aftur að vinna.. Ási á bara eftir að sakna mín mikið í sumar ! Annars er ég búin að vera að vinna í gróðurstöðinni heima síðan skólinn kláraðist..
En ég er víst á leiðinni í MS á næsta ári og hlakkar mig bara mikið til,, veit reyndar ekkert lengur hvert ég flyt en það er bara seinni tíma vandamál ! :)
Kominn tími á blogg eða ?? Já veistu ég held það nú bara ...
Núna er kellan loksins búin með þennan grunnskóla!! Búin að fá útúr samræmdu og náði öllu saman,, bara ánægð :) hefði reyndar verið til í að ganga aðeins betur í náttúrufræðinni en annars er ég bara góð!, held ég ! En já svo er það bara menntaskóli næsta ár og vonandi í bænum þar að segja ef ég kemst inn en það verðu bara gaman held ég!
Eftir skólaslitin fórum við vinahópurinn á Hótel Geysi að borða og fengum við þessu fínu nautasteik sem var btw geeðveik!!
Um síðustu helgi skelltum við Ási okkur í útlilegu með Jóhannesi, Bjarka og einhverjum til Skóga. Það var voða fínt fundum þennan fína stað á tjaldsvæðinu sem enginn var og var alveg upp við Skógafoss alveg rosa flott þannig að við þurftum ekki að hafa svona mikið hljóð útaf einhverjum túristum sem vildu sofa !! En já þetta var bara hin fínasta helgi fórum í sund á Vík, fórum svo niður í fjöru að öskra í þeirri trú að einhverjir selir myndu láta sjá sig því mér hefur verið sagt að þeir sjást ef maður öskrar þarna en neeei það bara kom enginn selur svo strákarnir fóru bara í frisbí útí fjöru og svo gerðum verið eitthvað meira skemmtilegt.
Svo ákvað ég að gera svona eins og allir ! Farðu í itunes og þú verður að vera í þinni tölvu. Settu shuffle á og settu síðan uppáhaldslagið þitt á og síðan klikkaru bara á next og sérð hvað kemur útúr þessu..
hjá mér kom þetta svona út :
þetta lag lýsir persónuleika þínum ; Run for your life - Beatles
þetta lag lýsir útliti þínu ; Change is gonna come - Gavin DeGraw
þetta lag lýsir hvernig þú verður eftir 10 ár ; If you have to ask - Red Hot Chli Peppers þetta lag lýsir hvað vinum þínum finnst um þig ; Santa baby - Kylie Minogue
þetta lag lýsir hvað foreldrum þínum finnst um þig ; Hard fucking - Tenacious D! haha þetta lag lýsir hvað þér finnst um vini þína ; Devil in her heart - Beatles Þetta lag lýsir hvað þér finnst um þann sem þú ert hrifinn af ; Blank baby - Presidents of the USA þetta lag lýsir tilfinningunni sem þú finnur fyrir þegar þú sérð þann sem þú hatar mest; Music Gets The Best of Me - Sophie Ellis Bextor ? Whaa ? þetta lag lýsir mottóinu þínu ; Baby It's you - Beatles
þetta lag lýsir skapinu sem þú ert í ; Suite-Pee - System of the down
þetta lag lýsir fyrsta skiptinu þínu ; Norwegian Wood - Beatles
þetta lag lýsir persónunni sem þú ert hrifin af ; Stuck In A Rut - The Darkness
þetta lag lýsir því hvað fólki finnst um þig þegar það sér þig fyrst ; Sing - Travis þetta lag lýsir framtíðinni þinni ; Dead leaves and dirty the ground - The White Stripes
Þetta lag lýsir starfinu sem þú munt vinna við ; Dragostea Din Tei - Ozone
Já frekar spes þar sem helmingurinn af þessu eru bítlarnir og ég þekki mörg hin lögin ekki ! :) en gaman af þessu..
En ég held að þetta sé komið gott í bili, heyrumst síðar!!
Kominn tími á blogg eða ?? Já veistu ég held það nú bara ...
Núna er kellan loksins búin með þennan grunnskóla!! Búin að fá útúr samræmdu og náði öllu saman,, bara ánægð :) hefði reyndar verið til í að ganga aðeins betur í náttúrufræðinni en annars er ég bara góð!, held ég ! En já svo er það bara menntaskóli næsta ár og vonandi í bænum þar að segja ef ég kemst inn en það verðu bara gaman held ég!
Eftir skólaslitin fórum við vinahópurinn á Hótel Geysi að borða og fengum við þessu fínu nautasteik sem var btw geeðveik!!
Um síðustu helgi skelltum við Ási okkur í útlilegu með Jóhannesi, Bjarka og einhverjum til Skóga. Það var voða fínt fundum þennan fína stað á tjaldsvæðinu sem enginn var og var alveg upp við Skógafoss alveg rosa flott þannig að við þurftum ekki að hafa svona mikið hljóð útaf einhverjum túristum sem vildu sofa !! En já þetta var bara hin fínasta helgi fórum í sund á Vík, fórum svo niður í fjöru að öskra í þeirri trú að einhverjir selir myndu láta sjá sig því mér hefur verið sagt að þeir sjást ef maður öskrar þarna en neeei það bara kom enginn selur svo strákarnir fóru bara í frisbí útí fjöru og svo gerðum verið eitthvað meira skemmtilegt.
En ég held að þetta sé komið gott í bili, heyrumst síðar!!
Hæhæ ;* Jájá það vill nú svo skemmtilega til að ég ætla að skella einu litlu bloggi hérna þar sem ég eyddi nýlega tæpri viku út í danmörku með bekknum mínum. En já það er svo skemmtilegt að segja frá því að eftir stærðfræði samræmda prófið bara um nóttina þá skelltum við okkur til Dk. Frá flugvellinum fórum við til Odense að hitta dönsku krakkana sem komu til okkar í haust.
Ég og Sigrún í flugvélinni á leiðinni út!
Við gerðum margt skemmtilegt meðan við vorum í Odense. Annan daginn fórum við í eitthvað H.C. Andersen safn, dómkirkjuna og dýragarð. Í dýragarðinum voru bara skemmtilegustu og heimskustu apar í heimi sem stukku og klesstu á gler, algjörar dúllur. Svo fengum við að eyða restinni af tímanum sem við áttum eftir í að versla á einhverri verslunargötu þarna í miðbænum. Um kvöldið hittumst við svo öll í skólanum og borðuðum þar fullt af mat sem foreldrarnir komu með og allir krakkarnir og fjölskyldurnar borðuðu saman þetta kvöld.
Ég að klappa Póný í dýragarðinum!
Á laugardeginum áttum við svo að eyða öllum deginum með fjölskyldunni sem við vorum hjá. Jájá allir gerðu eitthvað voða skemmtilegt en það vildi svo skemmtilega til að stelpan sem ég var hjá var svo þunn eftir kvöldið áður að hún nennti ekki að gera neitt allan daginn svo hún lá bara upp í rúmi að horfa á sjónvarpið og sofa til skiptis og var ekkert að spá í því hvort að mér leiddist neitt! jájá svona voru þessi danir nú skemmtilegir.
Á sunnudaginn fengum við íslendingarnir svo að hittast aftur sem betur fer! Þá fórum við á stað sem heitir Egeskov eða e-ð og þar var kastali, völundarhús, gamla bílasýningar og margt fleira.
Á sunnudagskvöldið var svo síðasta kvöldið með fjölskyldunum. Ég tók því bara rólega með minni fjölskyldu, tókum mynd á leigu og borðuðum pönnukökur með ís og sultu mmm...
Loksins á mánudaginn snemma um morguninn lögðum við í hann frá Odense og keyrðum til Kaupmannahafnar. Þar fórum við m.a. í siglingu, skoðuðum sumarhús kóngsins (sem er btw kastali!), fórum á strikið og svo í tivolí. Þetta var án efa lang skemmtilegasti dagurinn í ferðinni. Sigrún, Herdís og ég í siglingunni ;*
Á þriðjudaginn fórum við í smá skoðunarferð um Kaupmannahöfn og stoppuðum svo til að skoða litlu hafmeyjuna og til þess að taka myndir af hópnum öllum saman. :)
yfirgáfum við Danmörk og fórum heim á leið. Þetta var algjörlega geggjuð ferð og ég vil þakka öllum fyrir samveruna :)
En ég held að þetta sé komið nóg í bili! Ég set myndir inn fljótlega ! :) -Magga;*
Hér með þessu degi hef ég að mínu mati lokið grunnskóla! :D Loksins búin með öll þessi samræmdu próf og núna verður það bara stanlaust stuð! En mér finnst svo gaman að segja frá því að í kvöld þá munum við krakkarnir í 10. bekk hefja okkar lokaferð, leggjum af stað frá Reykholti um hálf þrjú í nótt til Keflavíkur og förum svo í loftið til Dk klukkan 7 í fyrramálið. Á laugardaginn fer ég með Mariu (dönsku stelpunni sem ég verð hjá) í verslunarferð og svo á mánudaginn held ég þá förum við frá óðinsvé til kaupmannahafnar og verðum heilan dag á strikinu og svo allt kvöldið í tivolí ! :) Ójá ég held bara að þetta verði æðislegt ! ;)
En ég kem örugglega með blogg að viti þegar ég kem heim frá útlöndum!
Sælt verið fólkið á þessum yndislega ógeðslega ringningadegi :)
Jæja núna er blessaða páksafríið búið og alvaran komin í fullan gang. Þar sem ég fór til Kanarý 27. mars þá er ég svona tæknilega séð búin að vera í páskafríi í tvær og hálfa vikur. En það var svaka fjör hjá okkur Ása úti og var sko alls ekki verið að hangsa þarna þessa vikuna. Komum út á þriðjudagskvöldi á miðvikudeginum var skreppt niður á strönd og beinustu leið út í sjó. Jájá mjög gaman fyrir vatnshrædda manneskju eins og mig, ég var annars að þora í fyrsta skipti að fara út í sjó! Voða stolt. En á fimmtudeginum var alls ekki verið að sofa út þar sem við þurftum að vakna eitthvað um hálf sex minnir mig sem er um hálf fimm á íslenskum tíma og þá var komið sér í rútu í einhverja klukkutíma. Jæja svo var það skemmtilegasti parturinn! Bátsferðin!!! En jájá allir í góðum gír og hressir og svona síðan lögðum við af stað ooog það var ekkert svo gaman... Ég, Ási, Helga, Jóhannes og Einar urðum öll sjóveik en ég og Ási vorum nú heppin að hafaekki ælt því það gerðu hin! Alveg var það ógeðslegt. En nú jæja svo var það bara lengri rútuferð upp á eitthvað helvítis fjall og fórum þar í aðeins 2300 metra hæð á rútu!! Síðan seinna um daginn komumst við loksins í dýragarðinn og vorum það í einhvern tíma. Þar sáum við höfrungashow og háhyrninga show og svona gaman eeen ekki alveg þess virði að leggja alla þessa ferð á sig fyrir að fara í einn dýragarð því manni leið ekkert vel eftir þessa ferð! :/ Á föstudeginum var farið í rennibrautagarð, go-kart, tivoli og keilu og svo voru hinir dagarnir bara svona eitthvað að búðarápast og svona. Þetta var rooosa skemmtileg ferð... Jájá en komið nóg um þaaað. :)
En núna eins og ég sagði öruggelga áðan þá eru páskarnir búnir og einhver tvær og hálf vika held ég í samræmdu prófin. Maður er alveg að farast úr stressi þessa dagana. En svo eftir þessi helvítis próf verður bara dans á rósum hjá okkur. Þá loksins förum við til DK oog þegar við komum heim þá er bara river rafting, þórsmörk og eitthvað svona skemmtilegt eftir.
En ég held að þetta sé komið í bili, á örugglega ekki eftir að blogga eitthvað að ráði fyrr en eftir samræmdu kannski eitthvað stutt og laggott. En þá barasta heyri ég í ykkur elskurnar! :*
Hæhæ gott fólk... Ætla að skrifa eitt stutt og laggott ! ;)
En það er svo gaman að segja frá því að ég er að fara með kallinum mínum honum Ása til kanarý núna bara á morgun og er búið að vera smá spenningur og svona í gangi !! :)
Um daginn fyrir löngu átti ég afmæli eða 10.mars og var hér haldið svona smá vina teiti hér í litla sæta húsinu mínu !!! :) Svo voru MLingar e-ð að bjóða okkur að þjóna þeim á árshátíðinni sinni því að þá máttum við fá að fara á frumsýningarballið daginn eftir og frá frítt !! :) voða gott enda ekkert smá stuð ;)
En annars segi ég voða lítið í fréttum svo ég kveð að sinni og heyrumst kannski bara aftur þegar ég er komin heim frá kanarý kannski brún og sæt ! :)
Jæja nú er búið að vera frí í skólanum í 5 daga! Búið að vera vetrarfrí, foreldraviðtöl og læti. En já gaman að segja frá því að allir eru búnir að fá einkunnirnar sínar og vondandi allir voða glaðir yfir þeim! Allavega mega sumir vera það ! ;) En 8.febrúar var Árshátíðin hjá okkur og var galaþema þetta árið. Það voru allir voða fínir og sætir. Veðurguðirnir voru að spila , geðveikt fjör! En það vildi svo skemmtilega til að við stelpurnar enduðum fyrir algjöri tilviljun allar í rauðum kjólum og vakti það mikla athygli að við værum svona rauðar!! :) þrátt fyrir það þá vorum við glæsilegar eins og þið sjáið! :D
Skemmtiatriðin báru af þetta árið fannst okkur.. Öll atriðin voru mjög fyndin, skemmtileg og flott!! En það var dansað og haft gaman allt kvöldið enda þurftum við að taka þessu balli með stæl þar sem þetta var seinasta grunnskólaballið okkar ! ;) Svo er það bara ML ball næst 9 eða 10 mars og vona ég að það mæta sem flestir ! ;)
Annars er nú ekki mikið búið að ske uppá síðkastið hjá mér ! Ási minn er nú samt kominn með bílprófið, reyndar svolítið síðan ca mánuður !